Verið velkomin!FréttirSunnudagurinn 31. janúar 2010WENALDS eða Western Europe & North America Leadership Development Seminar er ráðstefna haldin á vegum AIESEC einu sinni á ári. Undanfarin ár hafa alltaf einhverjir frá AIESEC á Íslandi farið á þessa ráðstefnu og er hún sögð vera ein sú besta á vegum AIESEC. Í ár verður hún haldin á Möltu dagana 12. - 16. mars 2010. Ef allt gengur að óskum þá fara nokkrir fyrir hönd AIESEC á Íslandi á ráðstefnuna þetta árið líkt og fyrri ár. Hér fyrir neðan má sjá kynningarmyndbandið frá AIESEC á Möltu.
Þriðjudagurinn 19. janúar 2010Gleðilegt nýtt ár! Þann 13. janúar kusu meðlimir AIESEC sér nýjan formann (MCP - Member Committe President) fyrir skólaárið 2010 - 2011. Frambjóðendur voru þrír, þeir Hannes Westphal frá Þýskalandi, Iván Quintero Camacho frá Venesúela og Teitur Helgason. Sá síðastnefndi bar sigur úr býtum og óskum við honum öll til hamingju. Hannes og Iván eru báðir hæfir einstaklingar til starfsins og því vonum við að þeir bjóði sig einnig fram í framkvæmdarstjórn félagsins. Á morgun (20. janúar 2010) verða einmitt opnar umsóknir fyrir framkvæmdarstjórnina (MCVPs) og eru allir þeir sem hafa áhuga, eru tilbúnir til þess að axla meiri ábyrgð, vinna meira fyrir AIESEC og stíga út úr þægindahringnum sínum hvattir til þess að sækja um. Umsóknarfresturinn er til 15. febrúar 2010 og eru kosningar þann 24. febrúar 2010. Hægt verður að nálgast umsóknarformin og eyðublöðin á vefsíðu MyAIESEC.net (http://www.myaiesec.net) þar sem við setjum allskonar gögn fyrir meðlimi og þar sem hægt er að skoða opin starfsnámstækifæri.
Þriðjudagurinn 8. desember 2009Frábærar fréttir frá AIESEC International! Á tímabilinu frá og með 1. janúar 2009 til og með 7. desember (í gær) þá höfðu 8018 nemar farið í starfaskipti á vegum AIESEC í heiminum.
Föstudagurinn 20. nóvember 2009Í dag var sendur út tilkynningarpóstur til nemenda Hákskólans í Reykjavík og nemendur Háskólans á Íslandi mega eiga von á einum slíkum á næstu dögum. Tilefnið var að við erum að taka við umsóknum frá þeim sem vilja halda út í starfsnám erlendis. Því miður var ekki hægt að komast inn á umsóknareyðublaðið í nokkrar klukkustundir í dag en núna á það að vera komið aftur í lag. Smelltu hér ef þú vilt sækja um starfaskipti.
Þriðjudagurinn 10. nóvember 2009Síðastliðinn miðvikudag var þriðji LC fundur annarinnar haldinn. TM teymið er núna að taka á móti umsóknum frá nemendum sem vilja fara út í starfsnám. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar hér og ef þú ert tilbúin til þess að leggja inn umsókn þá má nálgast hana hér.
Framadagateymið fyrir Framadaga árið 2010 hefur verið valið og var fyrsti fundurinn þeirra í gærkvöldi (mynd). Það samanstendur af frábæru fólki m.a. úr lögfræði, verkfræði, og viðskiptafræði úr hvoru tveggja Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. ER teymið er núna að hefja störf sín og þeirra fyrsta verk er að framkvæma markaðsrannsókn. Teymið sér um að hafa uppi á fyrirtækjum sem hafa áhuga á að fá til sín erlenda nema í starfsnám. Ef þitt fyrirtæki hefur áhuga þá er hægt að hafa samband við Hákon Örn Árnason. Meðlimir markaðsteymisins hafa verið önnum kafin við greiningu á vörumerki AIESEC. Send var út könnun til nema Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík og var þáttaka langt umfram væntingar. Landsstjórnin (MC) hefur verið að skipuleggja framvindu næstu mánaða og helstu dagsetningar eru: Opnun umsókna fyrir MCP verður 1. desember næstkomandi, umsóknarfresturinn verður til 6. janúar 2010 og kosningar verða þann 13. janúar árið 2010. Opnun umsókna fyrir MCVPs verður 20. janúar 2010, umsóknarfresturinn verður til 15. febrúar 2010 og kosningar verða þann 24. febrúar árið 2010. Valferlinu mun vera lokið fyrir þann 7. mars árið 2010 fyrir stjórnarmeðlimi fyrir skólaárið 2010-2011. Þórey Rúnarsdóttir IM |